Gjaldskrá Reykjaneshafnar

Gildir frá 1. janúar 2023

I. Almenn ákvæði.

1. grein.

Gjaldskrá þessi fyrir Reykjaneshöfn er sett skv. heimild í 17. grein hafnalaga nr. 61/2003. Gjaldskráin er við það miðuð að Reykjaneshöfn geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri hafnar sbr. 5. tölulið 3. gr. hafnalaga.

 

II. Um gjaldtöku tengda stærð skipa.

2. grein.

Við ákvörðun hafnagjalda samkvæmt stærð skipa skal miða við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælibréfi, sem gefið er út eftir ákvæðum alþjóðasamþykktarinnar um mælingu skipa frá 1969.

       

3. grein.


Af öllum skipum skal greiða hafnagjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar. 


III. Skipagjöld.

4. grein.


Lestagjöld: Af öllum skipum skal greiða lestagjald  kr. 22,98 á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.       

Bryggjugjöld:   Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða eftirfarandi:


Skip minni en 20.000 BT kr. 12,30 á mælieiningu skv. 2. gr. fyrir hverja byrjaða 24 tíma sem skipið liggur bundið.  Skip stærri en 20.000 BT kr. 15,40 á mælieiningu skv. 2.gr. fyrir hverja byrjaða 24 tíma, sem skip liggur bundið. 


Heimilt er að taka lesta- og bryggjugjald af skipum og minni bátum sem hér segir:

  • Skip og báta að 30 BT sem mánaðargjald kr. 11.760.- en þó aldrei lægri en kr. 2.940.- á mánuði
  • Skip og báta frá 31 BT að 50 BT sem mánaðargjald kr. 19.560.- en þó aldri lægri en kr. 4.890.-  á mánuði.
  • Skip og bátar sem eru 51 BT eða stærri greiða aldrei lægra gjald en kr. 5.880.-  á mánuði. 


Gjald fyrir legu erlendra gestaskúta í viðlegu við hafnarkant er €50 fyrir hverja byrjaða 7 daga. 


Skip og bátar sem leggjast að bryggju og eru án haffærisskírteinis greiða fimmföld bryggjugjöld byrjaðan fyrsta mánuð í viðlegu við hafnarkant, sexföld bryggjugjöld byrjaðan annan mánuð í viðlegu við hafnarkant, sjöföld bryggjugjöld byrjaðan þriðja mánuð í viðlegu við hafnarkant, áttföld bryggjugjöld byrjaðan fjórða mánuð í viðlegu við hafnarkant, níföld bryggjugjöld byrjaðan fimmta mánuð í viðlegu við hafnarkant og tíföld bryggjugjöld hvern byrjaðan mánuð í viðlegu við hafnarkant eftir það. Hafnarstjóra er heimilt að falla frá þessu ákvæði í gjaldskrá ef sérstakar aðstæður liggja þar til grundvallar.


Heimilt er að leggja þreföld bryggjugjöld á skip og báta sem óska eftir langtíma viðlegu vegna annarrar starfsemi en útgerðar.


Gjald fyrir báta undir 6 metrum að lengd í einkaleigu við flotbryggju í Gróf er kr. 9.597.- á legustæði fyrir hvern byrjaðan mánuð.

Gjald fyrir báta 6 metra að lengd eða lengri í einkaleigu við flotbryggju í Gróf er kr. 14.919.- á legustæði fyrir hvern byrjaðan mánuð.

Bátar sem taka meira en eitt legustæði við flotbryggju í Gróf greiða gjald samkvæmt ofangreindu margfaldað af fjölda legustæða.


Uppsáturgjald fyrir báta, sem geymdir eru á hafnarsvæði Reykjaneshafnar, er kr. 2.500.- á mánuði.


IV. Vörugjöld.

5. grein.


Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.


6. grein.


Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land í allt að sjö daga, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.


Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi. 


7. grein.


Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:


  1. Umbúðir, eins og fiskikör, tómir gámar o.fl., sem endursendar eru.
  2. Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
  3. Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
  4. Úrgangur frá skipum sem fluttur er í land til eyðingar.


8. grein.


Vörugjald skal reikna eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega.


Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds.  Skipstjóra eða afgreiðslumanni skips er skylt að láta gjaldkera  hafnarinnar í té afrit af farmskrá. 


Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskapavottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans.  Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast.  Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn.


Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðuð skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

 

9. grein.


Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:


Vörugjaldskrá:


1. flokkur. Gjald kr. 469.- pr. tonn:         

Heilfarmar í lausu efni, sem losað er eða lestað með færiböndum, dælingu eða mokstursvélum svo sem áburður, kísilgúr, kol, koks, kvarts, laust korn, málmgrýti og önnur steinefni, salt, sandur, sement, súrál, tréflísar, vatn, vikur, þörungamjöl,  og úrgangur (brotajárn o.fl.) sem fluttur er til endurvinnslu.


2. flokkur. Gjald kr. 556.- pr. tonn:         

Heilfarmur af vökva sem dælt er í land eða um borð í skip svo sem bensín, brennsluolíur (gasolía og flugvélaeldsneyti).


3. flokkur. Gjald kr. 810.- pr. tonn:         

Lýsi og fiskimjöl.


4. flokkur. Gjald kr. 945.- pr. tonn:

Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, útgerðarvörur, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda, pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.


5. flokkur. Gjald kr. 2.524.- pr. tonn:

Aðrar vörur, sem ekki eru tilgreindar í 1. – 4. fl.

Af flutningi vinnutækja innanlands skal veita allt að 50% afslátt.  Vörugjald greiðist ekki af bifreiðum ferðamanna, enda ferðast eigendur með sama skipi.


6. flokkur. Gjald 1,60%.   

Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum.  Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans.


Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis.

Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.

Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað eða að minnsta kosti mánaðarlega, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu.  Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað.  Seljandi ber skil á greiðslu aflagjalds og standa skal skil á greiðslu aflagjalds eigi sjaldnar en mánaðarlega.

 

Lágmarksverðmæti við útreikning aflagjalds miðast við skiptaverð Verðlagsstofu skiptaverðs.

 

V. Farþegagjald.

10. grein.


Farþegagjald skal tekið við komu og brottför farþega um Reykjaneshöfn. 


                        Farþegagjald fyrir hvern fullorðinn með farþegabátum er             kr. 300.-

                        Farþegagjald fyrir hvert barn með farþegabátum er                      kr. 150.-


Farþegabátar skulu skila skýrslu um fjölda farþega mánaðarlega. Ef skýrslu er ekki skilað inn um fjölda farþega þann mánuðinn er lágmarksviðmið í fjölda farþega til útreiknings 100 fullorðnir farþegar í hverri skipakomu mánaðarins.


VI. Hafnsögugjöld.

11. grein.


Hafnsögugjöld skulu greidd samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá:


  1. Fyrir leiðsögu til hafnarinnar, að bólvirki eða lægi kr. 7.358.- fyrir hvert skip, auk 9,93 fyrir hvert brúttótonn.  Fyrir leiðsögu frá bólvirki eða lægi og úr höfninni greiðist sama gjald.  Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 54.435.-.
  2. Fyrir leiðsögu um höfnina skal greiða hálft gjald samkvæmt lið a.


Ef hafnarstjóri veitir skipstjóra skips, sem lýtur skyldu um hafnsögu samkvæmt hafnarreglugerð fyrir Reykjaneshöfn nr. 982/2005, undanþágu frá hafnsögu er veittur 25% afslátt frá gjaldskrá hafnsögugjalda.


VII. Þjónusta dráttarbáts.

12. grein.


Öll skip sem koma til hafnar hjá Reykjaneshöfn eru skyldug að nota dráttarbát við komu að bryggju og við brottför frá bryggju. Þeir dráttabátar sem þjónusta hjá Reykjaneshöfn eru dráttabátur Reykjaneshafnar Auðunn (7,6t) , dráttarbátur Hafnafjarðarhafnar Hamar (15t), dráttabátar Faxaflóahafnar Haki (40t) og Magni (87t). Hafnsögumaður Reykjaneshafnar ákveður hvaða bátur eða bátar eru notaðir hverju sinni út frá stærð skipa og veðuraðstæðum.

Fyrir þjónustu dráttarbáts Reykjaneshafnar við flutning á hafnsögumanni innan þjónustusvæðis hafnarinnar í skip sem eru að koma til hafnar eða úr skipi á leið frá höfn greiðist kr. 86.000.- fyrir hverja klst. Lágmarksgjald er ein klst. og svo er greitt fyrir hverja byrjaða hálfa klst. eftir það. Fyrir þjónustu annarra dráttabáta greiðist samkvæmt gjaldskrá viðkomandi hafnar. 


Fyrir þjónustu dráttarbáts Reykjaneshafnar á hafnarsvæði Reykjaneshafnar virka daga milli kl. 08:00 og kl. 17:00 greiðist kr. 86.000.- fyrir hverja byrjaða klst. í þjónustu. Fyrir þjónustu dráttarbáts Reykjaneshafnar á hafnarsvæði Reykjaneshafnar þar fyrir utan greiðist kr. 151.000.- fyrir byrjaða fyrstu klst. í þjónustu og kr.  86.000.- fyrir hverja byrjaða klst. í þjónustu þar á eftir. Lágmarksgjald er ein klst. og svo er greitt fyrir hverja byrjaða hálfa klst. eftir það. Á stórhátíðardögum leggst 75%  álag ofan á viðkomandi gjald.


Önnur þjónusta dráttarbáts Reykjaneshafnar er samkvæmt samningi hverju sinni.


Dráttarbátur hafnarinnar eru í þjónustu og á ábyrgð þess skips eða aðila er þeir aðstoða frá því þeir taka við taug eða fyrirmælum viðkomandi er aðstoðar nýtur og þar til taug er sleppt eða fyrirmæli gefin um að aðstoð sé lokið.


VIII. Festargjöld

13. grein.


                        Festargjald fyrir hvern mann í dagvinnu er kr.  27.300.-.

                        Festargjald fyrir hvern mann í yfirvinnu er kr.  55.180.-.

                        Á stórhátíðardögum leggst 100% álag ofan á festargjald í yfirvinnu.


                        Fjöldi manna við hverja afgreiðslu er samkvæmt ákvörðun hafnaryfirvalda og fer eftir stærð skips og öðrum aðstæðum hverju sinni.


IX. Siglingavernd.

14. grein. 


Gjaldtaka Reykjaneshafnar sbr. Lög um siglingavernd nr. 50/2004 vegna kostnaðar við verndun skipa.

           

                        Skipavernd:      Fast gjald kr. 69.000.- fyrir komu hvers skips.

                        Farmvernd:       Fyrir farmvernd skal greiða 20% álag á vörugjöld.



Fyrir vaktþjónustu við öll skip skal farmeigandi greiða eftirfarandi öryggisgæslugjöld: 

       

Öryggisgæsla:   Fast gjald kr.   11.900.- fyrir hvern öryggisvörð á klst. í dagvinnu.

                        Fast gjald kr.  17.100.- fyrir hvern öryggisvörð á klst. í yfirvinnu.           

                        Á stórhátíðardögum leggst 100% álag ofan á hverja klst. í yfirvinnu.

                        Lágmarkstími fyrir öryggisgæslu í dag- og yfirvinnu er 4 klst.


X. Vatns-, rafmagns- og löndunarkranagjöld.

15. grein.


       Vatnsgjöld: 

                         Kalt vatn                                                          kr./m3                  620.-

                         Kalt vatn – lágmarksgjald á afgreiðslu               kr./skipti           3.100.-

                         Kalt vatn smábáta á hverja löndun                     kr.                       620.-


                                                                                                           

                         Heitt vatn                                                         kr./m3                       1.190.-

                         Heitt vatn – lágmarksgjald á afgreiðslu              kr./skipti           5.950.-

                                                                                                                                               

       

       Rafmagnssala:       

                        Rafmagnsnotkun                                               kr./kwst.                 26,45

                        Rafmagnsnotkun – lágmarksgjald án mælis        kr./sólarhr.        1.190.-

                                   

       

       Löndunarkranagjald smábáta                                              kr./löndun            1.332.-


Almenn afgreiðsla ofngreindrar þjónustu er virka daga frá kl. 08:00 til kl. 17:00. Afgreiðsla sem fer fram á öðrum tíma en á undan greinir flokkast sem yfirvinna og greiðist fyrir hana í samræmi við það. Tímagjald yfirvinnu á klukkustund er kr. 13.800.- og er lágmarkstími vegna þeirrar þjónustu fjórar klukkustundir. Á stórhátíðardögum leggst 100% álag ofan á viðkomandi yfirvinnu. 


XI. Vogargjöld.

16. grein.


       Almenn vigtun                                                                   kr./tonn               370.-


       Skráningargjald fyrir skráningu í Gafl                                  kr./tonn               370.-

-       sjálfstæðir aðilar vigta                                             kr./tonn                 37.-

       

       Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun afla                                 kr./vigtun           2.590.-

       Lægsta gjald fyrir vigtun vöru/tækja                                     kr./vigtun           3.226.-

       Vigtar- og skráningargjald Fiskmarkaðs                              kr./kg.                     0,40

       

Almenn afgreiðsla ofngreindrar þjónustu er virka daga frá kl. 08:00 til kl. 17:00. Afgreiðsla sem fer fram á öðrum tíma en á undan greinir flokkast sem yfirvinna og greiðist fyrir hana í samræmi við það. Tímagjald yfirvinnu á klukkustund er kr. 13.800.- og er lágmarkstími vegna þeirrar þjónustu fjórar klukkustundir. Á stórhátíðardögum leggst 100% álag ofan á viðkomandi yfirvinnu. 

       

XII. Ísafgreiðslugjöld.

17. grein


Ísafgreiðslan er við gafl Ísturnsins í Njarðvíkurhöfn í ílát eða farartæki á vegum kaupenda. Boðið er upp á akstur með ílát á vegum kaupenda til og frá viðleguköntum innan hafnarsvæðis, ef kaupandi setur ílátið á og tekur það af þar sem við á. 


                        Íssala til báta og fiskverkunar                             kr./kg.              11,80

                        Íssala í körum  460 lítra kar                               kr./kar              2.750.-

                        Íssala í körum  660 lítra kar                               kr./kar              3.847.-

                        Íssala í körum 1000 lítra kar                               kr./kar              6.371.-

                        Akstur á ís í körum innan hafnarsvæðis              kr./kar              1.395.-

                       

Almenn afgreiðsla ofngreindrar þjónustu er virka daga frá kl. 08:00 til kl. 17:00. Afgreiðsla sem fer fram á öðrum tíma en á undan greinir flokkast sem yfirvinna og greiðist fyrir hana í samræmi við það. Tímagjald yfirvinnu á klukkustund er kr. 13.800.- og er lágmarkstími vegna þeirrar þjónustu fjórar klukkustundir. Á stórhátíðardögum leggst 100% álag ofan á viðkomandi yfirvinnu. 


XIII. Sorphirðugjöld, vegna úrgangs, skólps mengandi efna og farmleifa frá skipum.

18. grein.

 

Fiskiskip, skemmtibátar sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega, herskip, hjálparskip í flota, skip sem þjónusta fiskeldi og skip í ríkiseign eða ríkisrekstri sem nýtt eru í þágu hins opinbera, sem koma til hafnar skulu greiða eftirfarandi gjald fyrir móttöku og meðhöndlun á „heimilis“ úrgangi frá skipum:


                        Skip minni en 10 BT                                         kr./mán.              3.230.-

                        Skip 10 – 100 BT                                              kr./mán.              6.560.-

                        Skip stærri en 100 BT                                        kr./mán.            11.600.-

                        Sorpeyðingargjald er innifalið í ofangreindum verðum.

     

Fyrir úrgang sem sóttur er að skipshlið eða skilinn eftir á hafnarsvæði greiðist kr. 17.500.- vegna aksturs á á móttöku- eða förgunarstað innan bæjarmarka Reykjanesbæjar. Fyrir förgun úrgangs greiðist samkvæmt gjaldskrá viðkomandi móttöku- eða förgunarstaðar. 


Vegna skipa sem falla undir grein 11 c. í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33/2004 skulu skip greiða eftirfarandi:


  1. Úrgangsgjald: Við komu skips til hafna skal skip greiða 6,62 kr. á brt.  Gjald þetta er til þess að standa undir eftirliti og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi. Innifalið í þessu úrgangsgjaldi er losun á allt að 1 m3 af almennum sorpúrgangi. Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 26.460.- og hámarksgjald kr. 111.140.-.
  2. Úrgangsgjald: Gjald skv. staflið a. má lækka ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og starfræksla skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð.  Fast gjald verður þá 4,97 kr. á brt.  Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 24.148.- og hámarksgjald kr. 89.920.-.
  3. Úrgangsgjald: Skip og bátar sem eru undir 60 metra að lengd, eru ekki hafnsöguskyld og hafa varanlega viðveru í höfnum Reykjaneshafnar skulu greiða fast mánaðargjald vegna eftirlits og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi.  Mánaðargjaldið skal vera kr. 9.980.-  á mánuði. 
  4. Förgunargjald: Óski skipstjóri eða eigandi skips eftir að tekið verði á móti úrgangi frá skipinu umfram það sem greinir í staflið a. skal hann hafa samband við viðurkenndan móttökuaðila skv. ábendingu hafnarinnar eða óska eftir því að höfnin annist móttöku á úrganginum.  Lágmarksgjald hafnar fyrir móttöku á úrgangi er kr. 17.210.- á hvern byrjaðan rúmmetra. Kjósi skipstjóri eða eigandi skips að óska eftir þjónustu viðurkennds aðila þá greiðir hann kostnað við þá þjónustu. Skipstjóri og/eða eigandi skips ber ábyrgð á að útfylltu eyðublaði um magn og tegund sorps sé skilað til  hafnarinnar, en misbrestur á því getur leitt til tilkynningar til Umhverfisstofnunar. 
  5. Förgunargjald: Skip sem undanþegin eru gjaldskyldu skv. 1. tl. 2. mgr. 17. gr.hafnalaga skulu eftir sem áður greiða fyrir losun sorps og förgun þess, sbr. 1. málsgrein 18. greinar gjaldskrárinnar. 
  6. Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu frá Umhverfisstofnun um skil á sorpi eða tilkynningum skv. 2. og 3. gr. gjaldskrár þessarar skal framvísa gildri staðfestingu þess efnis.


XIV. Leiga á gámasvæði, malarplönum og hafnarþekju.

19. grein


Skilgreind gámasvæði.

            Geymsla á malarsvæði                                                               kr.   82 á m2 á mánuði.

            Geymsla á svæði með bundnu slitlagi                                         kr. 184.- á m2 á mánuði.


Malarplön og hafnarþekja

Gámar, veiðarfæri, kör, bátar, kerrur og annað sem nýtir malarplön og hafnarþekjur til lengri eða skemmri tíma greiða kr. 62,50 á m2fyrir hverja byrjaða 7 daga á viðkomandi svæði. Lágmarksgjald samsvarar 10 msvæði eða kr. 625.- á hverja byrjaða 7 daga á viðkomandi svæði.


XV. Lóðarleiga.

20. grein.


Lóðarleiga miðast við fasteignamat lóðar, en árleg leiga er ákveðin af hafnarstjórn og er nú 2% af fasteignamati lóðar, en þó eigi lægri en kr. 96,00 á m2, miðað við byggingarvísitölu (grunnur 2010) 136,5 stig í janúar 2018.  Fjárhæðin skal breytast miðað við vísitölu byggingarkostnaðar eins og hún er í janúar ár hvert. Lóðir stærri en 15.000 m2 eru undaþegnar lámarksgjaldi lóðarleigu. Innheimta lóðarleigu hefst við afhendingu lóðarinnar. Lóðarleigan ber ekki virðisaukaskatt sbr. 8. tl. 2. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.


XVI. Mengun á hafasvæðum

21. grein.


Mengunarvaldur skal greiða allan kostnað við hreinsun vegna mengunaróhappa samkvæmt lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. M.a. getur þar verið um að ræða kostnað vegna vinnu starfsmanna Reykjaneshafnar, aðkeypta vinnur annarra aðila sem og kostnaður vegna notkunar á búnaði og nauðsynlegum efnum til hreinsunar.

 

XVII. Um innheimtu og greiðslu hafnargjalda.

22. grein.


Hafnarstjóri sér um innheimtu allra hafnargjalda og skal greiða gjöldin á skrifstofu hafnarinnar.  Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er heimilt að reikna hæstu lögleyfðu dráttarvexti á skuldina.   


23. grein.


Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Reykjaneshafnar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra, og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinunum uns gjöld eru greidd.  Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.   

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar. 


24. grein.


Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar.  Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um samið.  Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vörur án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð. 

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir. 

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar á skip.  Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt. 

 

25. grein.


Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi. Skipagjöldin eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé.  Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðskuldum sbr. ákvæði 2. mgr. 21.gr. hafnalaga nr. 61/2003.   Reykjaneshöfn er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til. 

 

26. grein.


Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts.  Reykjaneshöfn er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.  Undanskilin eru erlend fiskiskip og farskipum er sigla til útlanda.


XVIII. Gildistaka.

27. grein.


Gjaldskrá þessi fyrir Reykjaneshöfn er samþykkt af hafnarstjórn þann 14. desember 2023 skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004.

Gjaldskráin öðlast gildi þann 1. janúar 2024 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir Reykjaneshöfn frá 1. janúar 2023.


Reykjanesbær 15. desember 2023,

Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri.

Share by: